7.2.2009 | 11:02
Það vantar langtímahugsun
Gleði og sorg á Skólastígnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 11:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.10.2008 | 21:39
Æ þetta er orðið ansi ansi þreytt
Átök í Kaupmannahöfn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2008 | 21:40
Þetta er siðlaust...
Það er hreint með ólíkindum sá farsi sem er í gangi á Íslandi. Þetta heldur áfram og áfram og áfram. Nú síðast í fréttum í gær þar sem nýr bankastjóri ríkisbankans Kaupþings segir blákalt frá þeirri staðreynd að hann fái 1950 þúsund íslenskar krónur í laun á mánuði. Fyrr má nú rota en dauðrota segi ég bara...hvað hefur maðurinn við þetta að gera nú á þessum síðustu og verstu tímum..Ef hann sæi sóma sinn í að lækka þau einungis um milljón myndi hann geta bjargað t.d tveim stöðum í blessuðum bankanum og leyft fjölskyldufeðrum eða mæðrum að ganga inn í framtíðina með öruggari hætti.
og annað....
Mér finnst afar undarlegt að blessaðar kynsystur mínar sem tekið hafa við stjórnartaumunum í Glitni og Landsbanka skuli ekki gefa upp sín laun. Hvað er eiginlega málið...Nú er ekki tími til að vera í feluleik með þessa hluti..Við vitum um bullið sem búið er að vera í gangi hjá þessum blessuðu bankastjórum(sem mega skammast sín)...Elsku bestu bankastýrur, sjáið nú að ykkur..talið hreint út og ef þetta eru einhver ofurlaun..minnkið þá við ykkur..það sýnir hvaða hug þið berið til ykkar undirmanna...
Ég meina það...sá tími er liðinn að fólk slái um sig með ofurlaunum, snekkjum og nýuppgerðum húsum..."Við erum öll komin af sömu öpunum og úr sömu sköpunum á móður jörð"...Eins og Páll Óskar, vonandi verðandi forseti komst svo vel að orði:)
Njótið dagsins..
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.10.2008 | 19:33
Þetta er óþarfi
Æ er þetta ekki orðið soldið þreytandi að ekki sé hægt að sleppa því að minnast á að þessi og hinn sé Múslimi, Kristinn eða Íslendingur..Óþarfi að setja þessa ógæfumenn í sama bás og flesta múslima sem þrá bara frið eins og við hin..
Held líka að á þessum síðustu og verstu ættum við, og þá sérstaklega fjölmiðlamenn og þeir sem ábyrgð bera á almannaumræðum, að fara að taka okkur saman um að sleppa staðalmyndum okkar í umfjöllunum eða umræðum. Mig langar ekkert sérstaklega að vera bendluð við þá menn sem nú hafa sett íslenska ríkið og okkur öll í erfiða stöðu efnahagslega...Ef alltaf er rætt um að Íslendingar gerðu hitt og þetta en ekki bara ákveðnir einstaklingar kemur það óorði á okkur hin og það vil ég ekki...
Reynum að læra af ástandinu...Áttum okkur á staðalmyndum okkar til þess að gera ekki þeim lífið leitt sem ekki eiga það skiilð...
Dæmdir í fangelsi fyrir hryðjuverkaáform | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.6.2008 | 08:43
MJÖG hægfara viðhorfsbreytingar
Þetta kemur mér svo sem ekkert á óvart enda held ég að margir sem hafa innsýn inn í stöðu geðsjúkra á Íslandi muni ekki verða hissa yfir þessarri frétt. Ég hef alltaf undrað mig á því að fólki með ólíkar geðraskanir er hrúgað inn á sömu deildirnar. Veit að það hefur verið umræða í gangi í þjóðfélaginu um þessi mál á stundum, nú síðast þegar okkar ástsæli Árni Tryggvason steig fram og tjáði sig um reynslu sína af innlögn á deild 32c. Það er fremur vonlítið að manneskja, sem er lögð er inn á geðdeild vegna langvarandi þunglyndis og svefntruflana, jafni sig á sínum veikindum ef viðkomandi deilir herbergi með sjúklingi eða sjúklingum sem eru komnir styttra á veg í sínum bata eða þjást hreinlega af öðrum geðsjúkdómi. Þetta er eins og að leggja lungnasjúkling inn með hjartaskúklingi eða einhverjum lærbrotnum. Það þarf aðra faglega þekkingu og aðstæður fyrir mismunandi sjúkdóma og sjúklinga...það á líka við um geðsjúka.
Þegar ég var stálpaður unglingur og fór að spá í þessi mál, því þau eru mér nær, hélt ég að það væri bara tímaspursmál hvenær þessu innlagnasystemi geðsjúkra yrði breytt..nú eru komin nokkuð mörg ár síðan og mér finnst ég alltaf vera að heyra sömu sögurnar. Það er eins og það vanti langtíma hugsun í þá sem taka ákvarðanir um þessi mál....Er t.d betra að senda sjúkling heim sem er Næstum búin að ná sér...láta hann halda áfram að jafna sig heima...en taka svo á móti viðkomandi aftur eftir einhvern tíma vegna þess að planið gekk ekki upp... Um þetta eru mýmörg dæmi.
Ég held ekki að við heilbrigðisstarfsmenn sé að sakast enda yfirleitt algjörlega yndislegt fólk og faglegt sem vinnur við erfiðar aðstæður og niðurskurð endalaust. Það er ýmislegt mjög gott í gangi varðandi þróun en vöntun á fjármagni og lokun deilda..skapar óöryggi og stöðvar þróun finnst mér líklegt...
Þeir sem stjórna þessum málaflokki hljóta hafa ákveðna fordóma eða hræðast eitthvað sem þeir skilja ekki...allavega taka viðhorsbreytingar þeirra sem halda um budduna mjög mjög langan tíma...Það hlýtur að þurfa að hugsa heildrænt um þessi mál geðsjúkra og okkar allra því enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sér..gæti verið þú sem þarft að ná þér af þunglyndi inni á stofu með 2 öðrum með anorexíu og oflæti....
Bestu kveðjur
„Fráleitt“ að öryggisverðir sitji yfir geðsjúkum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.5.2008 | 19:54
Hvernig getum við horft upp á þetta?
Ég ætla ekki að láta eins og ég viti meira en ég veit en ég á rosalega erfitt með að horfa upp á hamfarirnar í Burma og sinnuleysi og hroka stjórnvalda þar. Eftir að hafa horft á myndir og lesið bækur um samsæriskynningar og valdataflið í heiminum þá finnst mér ótrúlegt að við höfum þurft að ráðast inn í Írak, til að "bjarga" valdníddu fólkinu þar..það dæmi allt saman hefur snúið upp á sig þannig að ekki sér fyrir endann á ósköpunum og þjáningunum...
Æ ég veit það ekki..er eitthvað hægt að gera í Burma án þess að skapa bara meiri ömurlegheit..Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að best sé að vinna mál innanfrá..þróunaraðstoð og uppbyggingu í þróunarlöndunum..hvað er hægt að gera í Burma...þegar ekki er hægt að koma hjálpinni inn?? Er eiginlega orðlaus yfir þessu bulli
15.5.2008 | 22:14
Að sjálfsögðu almennilega kynning og þjóðaratkvæðagreiðsla
Á móti þjóðaratkvæðagreiðslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.5.2008 | 19:30
Kannski soldið þreytt mál..og þó?
Eitt af því besta við að búa hér í Köben er samgöngukerfið eins og allir vita. Það er hreint ótrúlega gott finnst mér enda nota ég stætó, metró og hjól að öllu jöfnu..Það er mjög þægilegt og óstressað að nota kerfið þar sem maður getur stólað á að þó svo maður rétt missi af strætó þá kemur annar von bráðar og það stenst, svona allavega yfirleitt. Eina skiptið sem ég hef pirrað mig á kerfinu hér er þegar kemur smá snjómugga..eiginlega bara svona hret og þá er allt samgöngukerfið í lamasessi..alltaf eins og danir séu að sjá snjó í fyrsta skipti í hvert skipti..eina sem virkar þá eru hjólastígarnir virðist vera og samkennarar mínir mættu sumir ekki í vinnu einn muggudaginn vegna óveðurs hmmm..hinum frækna íslendingi fannst það að sjálfsögðu hrikalega fyndið viðkomandi algjörir lúserar þann daginn.
En svo við snúum okkur aftur að samgöngumálum þá hefur mér í gegnum tíðina legið ýmislegt á hjarta varðandi kerfið heima eins og svo mörgum. Mér finnst meiriháttar reyndar að farið sé að bjóða ákveðnum hópum í strætó heima til að auka nýtingu og gera kerfið vonandi virkt að lokum..það væri dásamlegt. Ég gafst upp á kerfinu heima í heimsókn þangað síðasta sumar. Ástæða þess að ég gafst upp einn góðviðrismorgun var sú að ég ætlaði að taka strætó frá Rauðarárstíg sem síðan kom ekki...þannig að ég hljóp með óléttubumbuna á Hlemm til að taka annar strætó. Ég var ekki kunnug leiðunum enda sífellt verið að breyta og "bæta". Þá sá ég hvar einn af bílstjórunum sat inni í vagninum og var að lesa í bók. Ég bankaði pent á hurðina til að fá hann til að opna og segja mér hvar ákveðinn vagn stoppaði því ég nennti ekki að bíða í hálftíma í viðbót. Maðurinn leit upp og svo niður í bókina aftur og þá fauk í óléttu konuna á hormónaflippinu og ég sem sagt stóð öskureið, í rauðu kápunni berjandi strætó all fast þar til bílstjórinn opnaði. Ég sagði nú bara sem var að mér fyndist heldur dónalegt að skeyta engu um þessa kurteisu konu. Þá var mér svarað á ensku "I don´t understand". Tungumálakonan ég sá nú ekki vandamál í því þannig að ég spurði manninn að sjálfsögðu á ensku. Þá sagðist maðurinn ekki vita neitt um neitt..og þá var mér allri lokið og ég borgaði offjár fyrir leigubíl. Ég vona þú að strætó sé farinn að þjálfa sitt fólk aðeins betur í vegvísun sem er mikilvæg þjónusta fyrir notendur að mínu mati. Væri kannski ráð að setja leiðakerfið upp eins og spennandi skáldsögu svo það sé skemmtilegra aflestrar..
Ég geri væntanlega stikkprufu næst þegar ég kem heim á Frón og læt vita hvernig gengur.
Hmmmm
14.5.2008 | 18:30
Kongens have - Hljómskálagarðurinn?
Ég hef undanfarna daga verið að spá.Ég var nefnilega í Kongens have í dag í 4. sinn á viku og það er dásamlegt enda veðrið búið að vera frábært hér í góðan tíma. Það er alltaf svo mikið líf í Kongens have bæði sumar og vetur og maður fyllist orku og gleði í hjarta sínu svei mér þá. Mér finnst Hljómskálagarðurinn heima alveg hreint yndislegur líka og svæðið allt í kringum tjörnina..Eini munurinn á þessum görðum er sá að hér er hægt að liggja í sólbaði án þess að vera í lopapeysu..væri ekki tilvalið að fara að gera eitthvað við blessaðan Hljómskálagarðinn..setja upp flott kaffihús með gashiturum fyrir utan þar sem maður gæti ornað sér undir teppi sumar vetur vor og haust, drukkið kakó í góðra vina hópi. Það hefur stundum verið í umræðunni að gera eitthvað til að lífga upp á garðinn en ég veit ekki meir. Í Kongens have í dag komu til okkar tvær tíu ára stelpur sem höfðu stofnað djússölu og seldu rifsberjadjús á 2 krónur glasið..3 krónur ef keypt voru tvö..þetta var svaka díll að sjálfsögðu og frábært framtak hjá þeim. Mér finnst raun synd hversu lítil aðstaða er í Hljómskálagarðinum eða við tjörnina..Ég er ekki að tala um brjálað markaðskraðak eins og td við Niagra fossana(skelfilegt)..en væri nóg að hafa kósý kaffihús..pylsuvagn...djússölukonur eða eitthvað huggulegt...
hmmm
13.5.2008 | 12:14
Eilífðarútlendingur
Hún Meinhild vinkona sem búin er að vera búsett hér í Kaupmannahöfn í 25 er frá Færeyjum. Meinhild talar betri dönsku en meðaldaninn...hún hefur búið lengur í Danmörku en í Færeyjum..en samt er hún alltaf kynnt sem færeyingurinn hvar sem hún kemur..Henni finnst þetta svo sem ekki alltaf koma málinu við, hvaðan hún er.
Málið er bara að maðurinn hefur svo gríðarlega þörf til að flokka sig og kannski frekar að flokka aðra og spegla þannig sjálfan sig. Nú er ég búin að vera búsett hér í Köben samtals í 5 ár og brandararnir, um hákarlinn...harðfiskinn..og allan okkar skrítna matinn okkar á Íslandi, eru hættir að vera fyndnir...enda borða ég yfirleitt ekki hákarl eða harðfisk..sem sagt glataður íslendingur...að því leytinu allavega. Ég held að þeim dönum sem tala enn um þessa hluti við mig langi ofboðslega til að tala við mig en viti bara ekki hvernig þeir eigi að brjóta ísinn...svei mér þá...
Í kjölfar fréttar um aukna fordóma ungs fólks heima á Íslandi í garð útlendinga um daginn datt mér í hug sama gamla tuggann sem maður er búin að vera að hjakkast á í gegnum tíðina... ræturnar okkar stjorna okkur. Við erum hrædd við það sem við þekkjum ekki..og svo vill fólk stundum alls ekki kynnast einhverju nýju...er algjörlega sátt við sitt. Ég hef stundum pirrað mig á fólki sem fer til Kanarí um jólin og tekur með sér hangilæri, orabaunir og rauðkál og jafnvel malt og appelsín..svo fer ég að hugsa...er þetta ekki bara í góðu lagi...fólk má alveg hreint nota sín 20kg í matarflutninga...reyndar fannst mér sagan góð af manninum sem fór með slatta af saltfiski með sér í sólarfrí til Spánar og græddi á tá og fingri...
Íslendingar sem búsettir eru hér í Danmörku eru margir mjög fastheldnir á sína siði og venjur, halda þorrablót og fleira í þeim dúr sem er bara gott mál fyrir þá...súdanir, palestínumenn, tyrkir, þjóðverjar ameríkanar, pólverjar og litháar eins og allir hinir hafa líka þörfina að halda í sínar hefðir og siði..það er svo notalegt að geta talað sitt tungumál..borðað matinn sem maður borðaði sem barn... og fleira...það þýðir ekki endilega að maður vilji ekki samlagast nýju landi..Það er bara gott að hafa það notalegt í því sem maður þekkir. Ég skil á vissan hátt flóttamennina sem eru alltaf á leið heim þegar stríðinu lýkur...þeir sjá ekki tilgang í að læra t.d íslensku eða dönsku..jájá voða slæmt að sjálfsögðu ég veit það alveg...en ef maður ætlar sér að stoppa stutt einhversstaðar..er að burðast með hryllingsstríðsminningar og vill bara loksins fá að láta sér líða vel þá skil ég vel að fólk leggi ekki á sig að læra mál sem 300.000 manns tala...þó svo allt segi manni að það sér rétt að gera það...það er bara ekki forgangsatriði held ég hjá flóttamönnum..ætla samt ekki að alhæfa því mörg dæmi eru til um að fólk lærir tungumál á mettíma og á þar af leiðiandi auðveldara að samlagast samfélaginu sem það býr í...ekki vafi á því...
En sem sagt..ef maður velur að búa í öðru landi en sínu upprunalega verður maður að takast á við plúsana og mínusana...maður verður eilifðarútlendingur sem sagt...þó svo maður tali málið...vinni einungis með dönum...elski rúllupylsu og gammeldansk....og veður að svara spurningunni í 1000. sinn hvort það sé ekki ægilega kalt á Íslandi...
hmmm