Eilífðarútlendingur

Hún Meinhild vinkona sem búin er að vera búsett hér í Kaupmannahöfn í 25 er frá Færeyjum. Meinhild talar betri dönsku en meðaldaninn...hún hefur búið lengur í Danmörku en í Færeyjum..en samt er hún alltaf kynnt sem færeyingurinn hvar sem hún kemur..Henni finnst þetta svo sem ekki alltaf koma málinu við, hvaðan hún er.

Málið er bara að maðurinn hefur svo gríðarlega þörf til að flokka sig og kannski frekar að flokka aðra og spegla þannig sjálfan sig. Nú er ég búin að vera búsett hér í Köben samtals í 5 ár og brandararnir, um hákarlinn...harðfiskinn..og allan okkar skrítna matinn okkar á Íslandi, eru hættir að vera fyndnir...enda borða ég yfirleitt ekki hákarl eða harðfisk..sem sagt glataður íslendingur...að því leytinu allavega. Ég held að þeim dönum sem tala enn um þessa hluti við mig langi ofboðslega til að tala við mig en viti bara ekki hvernig þeir eigi að brjóta ísinn...svei mér þá...

 

Í kjölfar fréttar um aukna fordóma ungs fólks heima á Íslandi í garð útlendinga um daginn datt mér í hug sama gamla tuggann sem maður er búin að vera að hjakkast á í gegnum tíðina... ræturnar okkar stjorna okkur. Við erum hrædd við það sem við þekkjum ekki..og svo vill fólk stundum alls ekki kynnast einhverju nýju...er algjörlega sátt við sitt. Ég hef stundum pirrað mig á fólki sem fer til Kanarí um jólin og tekur með sér hangilæri, orabaunir og rauðkál og jafnvel malt og appelsín..svo fer ég að hugsa...er þetta ekki bara í góðu lagi...fólk má alveg hreint nota sín 20kg í matarflutninga...reyndar fannst mér sagan góð af manninum sem fór með slatta af saltfiski með sér í sólarfrí til Spánar og græddi á tá og fingri...Wink

Íslendingar sem búsettir eru hér í Danmörku eru margir mjög fastheldnir á sína siði og venjur, halda þorrablót og fleira í þeim dúr sem er bara gott mál fyrir þá...súdanir, palestínumenn, tyrkir, þjóðverjar ameríkanar, pólverjar og litháar eins og allir hinir hafa líka þörfina að halda í sínar hefðir og siði..það er svo notalegt að geta talað sitt tungumál..borðað matinn sem maður borðaði sem barn... og fleira...það þýðir ekki endilega að maður vilji ekki samlagast nýju landi..Það er bara gott að hafa það notalegt í því sem maður þekkir. Ég skil á vissan hátt flóttamennina sem eru alltaf á leið heim þegar stríðinu lýkur...þeir sjá ekki tilgang í að læra t.d íslensku eða dönsku..jájá voða slæmt að sjálfsögðu ég veit það alveg...en ef maður ætlar sér að stoppa stutt einhversstaðar..er að burðast með hryllingsstríðsminningar og vill bara loksins fá að láta sér líða vel þá skil ég vel að fólk leggi ekki á sig að læra mál sem 300.000 manns tala...þó svo allt segi manni að það sér rétt að gera það...það er bara ekki forgangsatriði held ég hjá flóttamönnum..ætla samt ekki að alhæfa því mörg dæmi eru til um að fólk lærir tungumál á mettíma og á þar af leiðiandi auðveldara að samlagast samfélaginu sem það býr í...ekki vafi á því...

En sem sagt..ef maður velur að búa í öðru landi en sínu upprunalega verður maður að takast á við plúsana og mínusana...maður verður eilifðarútlendingur sem sagt...þó svo maður tali málið...vinni einungis með dönum...elski rúllupylsu og gammeldansk....og veður að svara spurningunni í 1000. sinn hvort það sé ekki ægilega kalt á Íslandi...

hmmm  


Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband